
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-70%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæslan Garðabæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 70% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni í starfsumhverfi sem er í sífelldri þróun. Á Heilsugæslunni Garðabæ ríkir góður starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Helstu verkefni og ábyrgð
Opin og bókuð móttaka - Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Ung- og smábarnavernd - Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs
Skólahjúkrun - Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
Reynsla af heilsugæsluhjúkrun
Reynsla af starfi með börnum kostur
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magússyni, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er -70%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-70%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026