Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í úttekt á kennaranámi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Sérfræðingur í úttekt á kennaranámi

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í úttekt á gæðum náms til kennsluréttinda við íslenska háskóla. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur falið Gæðamati háskóla að framkvæma úttektina. Um er að ræða tímabundna ráðningu sem nær yfir 11 mánuði í fullu starfi og gert er ráð fyrir að hefjist í ágúst 2026.

Sérfræðingurinn gegnir lykilhlutverki í gagnaöflun, rannsóknarvinnu og daglegu utanumhaldi úttektarferlisins í samráði við verkefnastjóra úttekta hjá Gæðamati háskóla. Sérfræðingurinn vinnur með úttektarnefnd, sem skipuð verður alþjóðlegum sérfræðingum, en situr þó ekki í nefndinni. Sérfræðingurinn styður við verkefnið á öllum stigum þess, frá gagnaöflun og greiningu til skila á lokaskýrslu.

Um úttektina

Úttekt á gæðum náms til kennsluréttinda tekur til fjölda námsbrauta við fjóra háskóla: Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Markmið úttektarinnar er að varpa heildstæðu ljósi á stöðu kennaramenntunar á Íslandi. Til skoðunar er hversu vel námsbrautirnar undirbúa nemendur til kennslu og hvernig innri gæðastjórnun námsins er háttað. Úttektin mun varpa ljósi á góða starfshætti sem og tækifæri til umbóta, en nefndin mun leggja fram tillögur sem styðja við áframhaldandi þróun og gæði kennaranáms á Íslandi. Auk þess felur úttektin í sér alþjóðlegan samanburð við tilhögun kennaranáms í völdum samanburðarlöndum.

Úttektarferlið fer fram í fjórum áföngum: gagnasöfnun og greiningu, spurningakönnunum til hagaðila, vettvangsheimsóknum og skýrsluskrifum. Ferlinu lýkur með birtingu opinberrar skýrslu þar sem lagðar verða fram tillögur að umbótum til ráðuneytisins og þeirra háskóla sem úttekin nær til.

Úttektin fer fram á ensku.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Halda utan um skipulag úttektarferlisins í samráði við Gæðamat háskóla

  • Hafa umsjón með gagnasöfnun fyrirliggjandi gagna, öflun nýrra gagna, úrvinnslu þeirra og greiningu

  • Vera tengiliður milli úttektarnefndarinnar og háskólanna sem úttektin nær til

  • Gegna hlutverki ritara úttektarnefndarinnar

  • Aðstoða við skipulagningu vettvangsheimsókna

  • Vinna að ritun úttektarskýrslunnar í samstarfi við úttektarnefndina

  • Veita úttektarnefndinni og verkefnastjóra úttekta hjá Gæðamati háskóla stuðning á öllum stigum ferlisins

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í menntavísindum, félagsvísindum eða skyldum greinum. Doktorsgráða er kostur

  • Reynsla af gagnaöflun og greiningu megindlegra og eigindlegra gagna

  • Hæfni til að vinna sjálfstæða rannsóknarvinnu

  • Reynsla af verkefnisstjórnun

  • Afbragðs skipulagshæfni og samskiptafærni

  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

  • Þekking á íslenska háskólakerfinu, kennaranámi og íslenska skólakerfinu er kostur

  • Þekking á gæðamálum háskóla er kostur

Viðkomandi má ekki vera í ráðningasambandi við neinn fjögurra háskólanna meðan á úttektinni stendur, sitja í stjórnum eða nefndum háskólanna eða stunda rannsóknarverkefni á vegum þeirra.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Umsóknarfrestur er 18. júní 2026. Áætlað að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. ágúst 2026 og að verkefninu ljúki 1. júlí 2027. Starfsstöð verður á skrifstofu Gæðamats háskóla í Borgartúni 30 (eða eftir samkomulagi).

Eftirfarandi gögnum skal skila með umsókninni:

  • Kynningarbréf

  • Ferilskrá

  • Staðfest afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.

Athugið að öllum umsóknargögnum skal skilað á ensku.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg.

Um Gæðamat háskóla

Gæðamat háskóla sinnir óháðu ytra gæðamati íslenskra háskóla með það að leiðarljósi að efla gæði og stuðla að stöðugum umbótum í háskólakerfinu á Íslandi. Það starfar samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum um sjálfstæði gæðamatsstofnana og hefur fullt sjálfræði yfir starfsemi sinni. Meðal helstu hlutverka er að móta rammaáætlun um eflingu gæða í íslenskum háskólum og þróa hana í takt við breytingar sem verða á háskólakerfinu hérlendis sem erlendis, framkvæma reglubundnar stofnunarúttektir í því markmiði að tryggja að háskólar á Íslandi sinni innra gæðamati og vinni að umbótum á allri starfsemi sinni, stuðla að aukinni þekkingu á sviði gæðamála sem og annast aðrar úttektir að beiðni íslenskra yfirvalda eða annarra hagaðila.

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Gæðamats háskóla

ogs@iaqa.is

699-7066

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir

Framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: ogs@iaqa.is

Sími: 6997066

Þjónustuaðili

Menning­ar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í úttekt á kennaranámi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026