
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-50%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa í ráðgjafar- og meðferðarteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi, við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. Kennsla og ráðgjöf til annarra fagaðila verður einnig mikilvægur hluti af starfinu.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 40-50% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferð og eftirfylgni barna og fjölskyldna þeirra
Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
Umsjón og yfirsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
Þverfagleg teymisvinna
Þátttaka í þróun og uppbyggingu þjónustu
Ráðgjöf og fræðsla
Skipulagning fræðslu til barna og fjölskyldna þeirra
Námskeiðshald
Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun skilyrði
Reynsla af meðferðarvinnu skilyrði
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu skilyrði
Skipulagshæfni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
Faglegur metnaður, góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku skilyrði
Góð almenn enskukunnátta
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 40-50%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristmundsdóttir
Forstöðumaður
Tölvupóstur: Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6600

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-50%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026