
Þjónustuaðili
Menntaskólinn í Kópavogi
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmaður mötuneytis MK - spennandi starf á góðum vinnustað
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026
Yfirmaður mötuneytis MK - spennandi starf á góðum vinnustað
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir matreiðslumenntuðum einstaklingi í 100% starf í mötuneyti skólans. Um tímabundið starf í eitt ár er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Mötuneytiseldhús skólans er nýlegt og er aðstaða þar öll fyrsta flokks. Í skólanum er framúrskarandi aðstaða fyrir nemendur og starfsfólk, aðstaða í mötuneyti er til fyrirmyndar og starfsandi góður.
Menntaskólinn í Kópavogi er framhaldsskóli sem kennir samkvæmt áfangakerfi og býður upp á kennslu til stúdentsprófs á bóknámsbrautum, einnig kennslu á iðn- og verknámsbrautum á matvælasviði og kvöldnám í leiðsögn. Um 100 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 1100.
Helstu verkefni og ábyrgð
stýra mötuneyti skólans og skipuleggja innkaup
undirbúa, elda og ganga frá eftir málsverði nemenda og starfsfólks
undirbúa veitingar fyrir viðburði á vegum skólans
vinna að góðri hráefnisnýtingu í samvinnu við Hótel- og matvælaskólann og innkaupastjóra skólans
Hæfniskröfur
umsækjendur skulu vera með menntun í matreiðslu
hafa reynslu af matseld í stóru mötuneyti
eiga sögu um góð og jákvæð samskipti í starfi
búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari
búa yfir hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
búa yfir ríkri þjónustulund og vera lausnarmiðaður
við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is, og skal náms- og starfsferilsskrá sem og sakavottorð fylgja með innsendri umsókn ásamt þeim gögnum í viðhengi sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu. Innsend gögn verða lögð til grundvallar ráðningu og skulu þau vera á íslensku.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Menntaskólinn í Kópavogi
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmaður mötuneytis MK - spennandi starf á góðum vinnustað
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026