
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
03.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026
Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Legudeild geðrofssjúkdóma óskar eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingi sem vill efla sig á sviði geðhjúkrunar. Starfið hentar vel þeim sem brenna fyrir leiðtogahæfni, samskiptatækni, öryggi og fjölbreytta vinnu. Áhersla er lögð á notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 70-100% og er starfið laust frá 15. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu og lyfjameðferð. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdómi. Deildin státar af góðri þverfaglegri teymisvinnu og er sérstök áhersla lögð á að veita aðstandendum stuðning.
Mikil áhersla er á eflingu hjúkrunar í geðþjónustu. Hjúkrunarfræðingum, nýútskrifuðum sem og reyndum, gefst kostur á sérhæfðu starfsþróunarári ásamt faghandleiðslu. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun á deild undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á hjúkrun á deild
Yfirsýn yfir hjúkrunarþarfir og öryggisþætti, skipuleggur, útdeilir og veitir viðeigandi hjúkrunarmeðferð
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur þeirra
Kennsla, þjálfun og stuðningur við nema og annað starfsfólk
Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
Stuðla að góðum samstarfsanda
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Framhaldsnám í geðhjúkrun er kostur
Reynsla af geðhjúkrun er kostur
Reynsla og áhugi á fjölskylduhjúkrun
Faglegur metnaður og leiðtogahæfni
Góð samskiptahæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Jákvætt hugarfar og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Kleppsgarðar, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðfinna Betty Hilmarsdóttir
Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is
Lóa Björk Bjerkli Smáradóttir
Tölvupóstur: loabsma@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
03.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026