
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
18.06.2026
Félagsráðgjafi í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Kvenna- og barnaþjónusta Landspítala óskar eftir félagsráðgjafa í teymi nýrrar ofbeldismóttöku barna sem falið er að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast sérhæfðrar, samfelldrar og áfallamiðaðrar þjónustu. Teymið mun sinna börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi, vanrækslu eða öðrum alvarlegum áföllum.
Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á mótun og uppbyggingu nýrrar þjónustu og hentar fagaðila sem vill hafa raunveruleg áhrif á velferð barna til framtíðar.
Fagaðilum sem ráða sig til þjónustu í nýju teymi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis.
Starfið unnið í nánu þverfaglegu samstarfi. Starfshlutfall er 50-100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst, en upphafsdagur er samkomulagsatriði. Um tímabundna ráðningu til eins árs er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þverfaglegu teymi um heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi, vanrækslu eða alvarlegum áföllum
Heilbrigðisþjónusta í samræmi við gagnreynda þekkingu
Gæða- og umbótastarf á þverfaglegum grundvelli
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem félagsráðgjafi
Brennandi faglegur áhugi á málefnum barna sem hafa orðið fyrir ofbeldi, vanrækslu eða alvarlegum áföllum
Reynsla sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Hæfni til að þróa og aðlaga heilbrigðisþjónustu að fjölbreyttum þörfum notenda
Faglegur metnaður, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að takast á við krefjandi verkefni
Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Góð íslensku- og enskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsráðgjafi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Barnaspítali Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sara Hrund Helgadóttir
Tölvupóstur: sarahh@landspitali.is
Rannveig Björk Guðjónsdóttir
Tölvupóstur: rannvebg@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi í heilbrigðisþjónustu við börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og áföllum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
18.06.2026