Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð

Við óskum eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar. Unnið er í dagvinnu virka daga og er starfshlutfall og upphaf starfa samkomulag.

Á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð framkvæma geislafræðingar skimanir fyrir brjóstakrabbameini og klínískar myndgreiningar brjóstameina. Geislafræðingarnir ferðast einnig út um allt land og framkvæma þar brjóstaskimanir. Starfið er mjög fjölbreytt og mikil tækifæri fyrir geislafræðinga að taka þátt í þróun og uppbyggingu brjóstarannsókna. Unnið er að því að votta starfsemina og í þeirri vinnu gegna geislafræðingar lykilhlutverki.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framkvæmd brjóstarannsókna

  • Sérhæfð verkefni eftir atvikum sem heyra undir starfsemi deildar

  • Virk þátttaka í gæðastarfi

  • Skráning í upplýsingakerfi deildarinnar

  • Stuðla að góðri myndgreiningarþjónustu

  • Þátttaka í teymisvinnu á Brjóstamiðstöð

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi geislafræðings

  • Mjög góð samskiptahæfni og fagleg framkoma

  • Hæfni og geta til starfa í teymi

  • Virk þátttaka og áhugi á að byggja upp og stuðla að góðum starfsanda

  • Stundvísi, áreiðanleiki og jákvæðni

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Frumkvæði og skipulagsfærni

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, teymisvinna,

Tungumálahæfni: Íslenska 3/5, enska 3/5

Staðsetning: Eiríksgata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristrún Þórkelsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: kristrth@landspitali.is

Sími: 824-5421

Helena Ýr Gunnarsdóttir

aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: helenayg@landspitali.is

Sími: 844-8971

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Geislafræðingur- Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026