Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ræstitæknir í Iðu íþróttahúsi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

10.06.2026

Ræstitæknir í Iðu íþróttahúsi

Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða ræstitækni í Iðu íþróttahús frá og með 17. ágúst 2026. Um er að ræða 100% starf.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.

Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegar ræstingar í Iðu samkvæmt þrifaplani.

  • Aðstoðar vaktmenn Iðu ef við á.

  • Önnur verkefni, t.d. garðsláttur, í samráði við ræstingastjóra og umsjónarmann fasteigna.

  • Tilfallandi afleysingar í samráði við ræstingastjóra og umsjónarmann fasteigna.

  • Ber ábyrgð á að verkefni sem undir hann falla séu unnin samviskusamlega og innan settra tímamarka.

Hæfniskröfur

  • Leitað er að áreiðanlegum og samviskusömum einstaklingi með mikla þjónustulund og jákvæða framkomu.

  • Reynsla af þrifum er kostur.

  • Vilji og geta til að takast á við margvísleg verkefni.

  • Íslenskukunnátta er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Vinnutími er að jafnaði virka daga frá 7:30 - 14:30.

Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um nám og fyrri störf. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni, www.fsu.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 480-8100

Jóhann Böðvar Sigþórsson

ræstingastjóri

Tölvupóstur: johannb@fsu.is

Sími: 480-8100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Ræstitæknir í Iðu íþróttahúsi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

10.06.2026