
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan í Vík í Mýrdal leitar að starfsmanni
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Heilsugæslan í Vík í Mýrdal leitar að starfsmanni
Leitað er að öflugum, þjónustuliprum og ábyrgum einstaklingi í fjölbreytt starf. Um er að ræða nýtt sameinað starf móttökuritara og starfsmanns í þrifum þar sem lykilhlutverkið er að tryggja góða þjónustu við skjólstæðinga ásamt því að tryggja snyrtilegt og öruggt umhverfi.
Á heilsugæslunni í Vík sameinast náttúrufegurð og samhent samfélag sem gerir daglegt líf og starf einstakt, á heilsugæslunni vinnur lítið teymi þétt og vel saman. Starfsmaður fær tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í daglegri starfsemi heilsugæslunnar í fjölbreyttu og lifandi starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka skjólstæðinga
Símsvörun
Skráningar og umsýsla
Almenn skrifstofu¿ og þjónustustörf
Dagleg þrif á húsnæði heilsugæslunnar
Áfylling á rekstrarvörum og eftirlit með aðstöðu
Önnur störf sem falin eru af yfirmanni
Hæfniskröfur
Almenn tölvukunnátta er skilyrði
Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af þjónustustörfum kostur
Áreiðanleiki og jákvætt viðmót
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Þjónustusvæði HSU nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands er leiðandi afl í heilbrigðisþjónustu og hjá okkur færðu tækifæri til að vaxa. Við vinnum markvisst eftir skýrri stefnu, leggjum áherslu á nýsköpun og gefum þér svigrúm til að láta hugmyndir verða að veruleika. Hjá okkur hefur þú áhrif, færð að þróast í starfi og vinnur í umhverfi sem leggur áherslu á traust, gæði, öryggi og ábyrgan rekstur.
Starfshlutfall er 100% og er upphafsdagur starfs samkomulag.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan í Vík í Mýrdal leitar að starfsmanni
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026