
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Við sækjumst eftir kraftmiklum sjúkraliða sem hefur áhuga á spennandi og fjölbreyttri hjúkrun á göngudeild 10E Landspítala við Hringbraut. Á deildinni er veitt fjölbreytt þjónusta á mismunandi sérsviðum. Starfið sem um ræðir er hluti af tveimur teymum, þ.e. meltingar- og kviðarholsskurðteymi. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og er ráðið í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Meltingarteymið sinnir sjúklingum með IBD, næringarslöngur/hnappa, skorpulifur og aðra meltingarfærasjúkdóma. Þá er hluti starfseminnar á innrennslismóttöku og einnig við rannsóknir á meltingarfærum.
Kviðarholsteymið sinnir sjúklingum fyrir og eftir skurðaðgerðir á kviðarholi, sáraskiptingum, stómaþegum og einnig eru gerðar minniháttar aðgerðir í staðdeyfingu. Starfið er því afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.
Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun, en þar starfar öflugur hópur og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mæla lífsmörk í innrennsli
Aðstoða við inngrip og skoðanir
Aðstoða við og framkvæma rannsóknir
Fjarvöktun sjúklinga í meðferð
Þátttaka í þróun og umbótum
Stuðla að góðum starfsanda
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026