Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á slysa- og bráðadeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.05.2026

Umsóknarfrestur

08.06.2026

Sumarafleysing - Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á slysa- og bráðadeild

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða/nema í sumarafleysingar á slysa- og bráðadeild. Um er að ræða vaktavinnu með möguleika á framlengingu.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Sjúkraliðar/nemar sinna umönnun skjólstæðinga og öðrum störfum undir stjórn og í samvinnu við hjúkrunarfræðinga. Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og markmiðum deildarinnar.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sjúkraliða eða vera í sjúkraliðanámi

  • Faglegur metnaður og vandvirkni

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hlýtt og jákvætt viðmót

  • Starfsreynsla er æskileg

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, staðfesting á námi þarf að fylgja. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Kristbjörg Bjarnadóttir

Tölvupóstur: asta.k.bjarnadottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysing - Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á slysa- og bráðadeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

28.05.2026

Umsóknarfrestur

08.06.2026