Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur á göngudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

28.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026

Sálfræðingur á göngudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar staða sálfræðings við dag- og göngudeild geðdeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Frábært tækifæri til að taka þátt í innleiðingu og mótun umbótarvinnu á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og krefjandi. Í því felst frekari mótun sálfræðivinnunnar á göngudeild geðdeildar. Um er að ræða 80-100% ótímabundna stöðu í dagvinnu og er æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Undanfarin misseri hefur dag- og göngudeild geðdeildar staðið í mikilli umbótarvinnu á starfsemi sinni. Þar fer fram fjölbreytt og mikilvæg starfsemi til meðferðar og stuðnings við skjólstæðinga 18 ára og eldri. Einn af hornsteinum starfseminnar er teymisvinna þar sem unnið er þvert á fagstéttir en þar eru sálfræðingar mikilvægur hluti af starfseminni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat og meðferðarvinna skjólstæðinga og þjónusta við þá í formi einstaklings- og hópameðferðar, m.a. út frá hugmyndafræði HAM og DAM

  • Samvinna við skjólstæðinga, fjölskyldur og samstarfsfólk þvert á faggreinar með það að markmiði að veita sem besta þjónustu við viðkomandi og/eða fjölskyldu hans

  • Samstarf við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu

  • Ábyrgð á þróun starfs og gæðum þjónustu gagnvart skjólstæðingum

  • Þátttaka í starfsþjálfun og handleiðslu nema og nýrra starfsmanna ásamt miðlun fræðslu

  • Þátttaka í þróun sinnar einingar hvað varðar skipulag, stefnumótun og framkvæmd starfseminnar

  • Fagleg tengsl og samráð við samstarfsaðila innan og utan stofnunar

  • Heldur utan um skýrslur og skráir upplýsingar í þar til gerð sjúkraskrárkerfi um meðferð skjólstæðinga, tryggir að allar upplýsingar séu skráðar með viðeigandi lögum og reglum og árangursmetur þjónustuna og þróun hennar.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi og íslenskt starfsleyfi sálfræðings

  • Hafa reynslu af greiningu og meðferð fullorðinna einstaklinga með geðraskanir

  • Reynsla af því að stýra og sinna hópameðferðum er kostur

  • Leitað er eftir sálfræðingi með þjálfun í hugrænni atferlismeðferð og reynslu af beitingu hennar sem og reynslu af öðrum meðferðum svo sem áfallameðferð

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta er kostur

  • Auk fagþekkingar er lögð áhersla á frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og að viðkomandi hafi hæfileika á sviði samskipta og samvinnu.

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustaða og utan hans samrýmist starfinu

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður R Magnúsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: rrm0109@sak.is

Sími: 463-0100

Gestur Guðrúnarson

þjónustustjóri

Tölvupóstur: ggu0125@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur á göngudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

28.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026