
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður á skurðstofum við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026
Skrifstofumaður á skurðstofum við Hringbraut
Við óskum eftir jákvæðum einstaklingi til fjölbreyttra starfa á skurðstofum við Hringbraut. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, vera sjálfstæður í starfi og hafa áhuga á að taka að sér fjölbreytt störf. Starfið er laust frá 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, unnið er í dagvinnu frá kl. 07:30-15:30.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn skrifstofustörf, s.s. símsvörun og upplýsingagjöf
Flutningur sjúklinga frá deild og á skurðstofur
Samskipti við iðnaðarmenn og þjónustuaðila utan deildar
Aðstoðar deildarstjóra og hjúkrunarfræðinga deildarinnar við ýmis verkefni
Vinnsla og utanumhald ýmissa gagna og lista
Aðstoð við vinnuskýrlsur
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
Góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
Reynsla af skrifstofustörfum er æskileg
Mjög góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Enskukunnátta er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Heilbrigðisþjónusta, skrifstofustörf, móttaka, ritari, símsvörun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður á skurðstofum við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026