Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari á sérnámsbraut

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

08.06.2026

Sérkennari á sérnámsbraut

Viltu taka þátt í veita ungu fólki framúrskarandi undirbúning fyrir lífið?

Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða sérkennara á sérnámsbraut skólans frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026 - 2027.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda.

Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna með nemendum á sérnámsbraut skólans sem þarfnast sérstakrar umönnunar og hæfingar.

  • Kennari skipuleggur og undirbýr kennslu og metur nám samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár.

  • Vinnur í teymi með öðrum sérfræðingum.

  • Hefur umsjón með nemendum sem honum er falið hverju sinni og ber ábyrgð á samskiptum við forráðamenn þeirra ásamt almennri upplýsingagjöf.

  • Gerir námsáætlun og eftir aðstæðum einstaklingsáætlun og

  • Viðheldur faglegri hæfni sinni.

  • Tekur þátt í samráði vegna starfs síns.

  • Situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019.

  • Menntun í sérkennslufræðum er skilyrði.

  • Reynsla af kennslu og vinnu með fötluðum ungmennum er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af skipulagðri kennslu (TEACCH).

  • Þekking og reynsla af vinnu með tjáskipti, þ.á.m. Tobii tjáskiptatölvum.

  • Faglegur metnaður, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og ríkur samstarfsvilji.

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku.

  • Góð tölvukunnátta og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.

  • Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Upplýsingar um skólann má finna á www.fsu.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 480-8100

Jónína Ósk Ingólfsdóttir

sviðsstjóri sérnámsbrautar

Tölvupóstur: jonina@fsu.is

Sími: 480-8100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari á sérnámsbraut

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

08.06.2026