Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

01.07.2026

Aðstoðardeildarstjóri - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja

Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildarstjóra á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum. Dagvinna í sveigjanlegum vinnutíma með bakvöktum. Starfshlutfall 80-100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

Gegnir öllum störfum hjúkrunarfræðinga þegar það á við. Í starfi aðstoðardeildarstjóra felst m.a. að halda utan um þjónustu við íbúa heimilisins, afleysing deildarstjóra og skipuleggur starf deildar í samvinnu við deildarstjóra.

Hæfniskröfur

Almennur hjúkrunarfræðingur. Íslenskt hjúkrunarleyfi. Æskileg er a.m.k. 6 ára reynsla í hjúkrun. Einnig er æskileg reynsla af stjórnun og/eða framhaldsnám í hjúkrun. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bríet Magnúsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: briet.magnusdottir@hsa.is

Sigurveig Gísladóttir

Fagstjóri hjúkrunarheimila HSA

Tölvupóstur: sigurveig.gisladottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

01.07.2026