
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningamaður óskast til starfa á HSN Þórshöfn
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
10-100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
05.06.2026
Sjúkraflutningamaður óskast til starfa á HSN Þórshöfn
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann með réttindi til starfa við sjúkraflutninga á Þórshöfn. Um er að ræða bakvaktir og útköll og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfið hentar sérstaklega vel sem aukastarf samhliða öðru starfi, þar sem vinnufyrirkomulagið býður upp á sveigjanleika og fjölbreytni í verkefnum.
Starfið felur í sér mikilvægt hlutverk í að tryggja öryggi og gæði í heilbrigðisþjónustu, þar sem fagmennska, ábyrgð og skjót viðbrögð skipta sköpum.
Hjá HSN er lögð áhersla á vellíðan í vinnu, samþættingu vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun, öryggi, gæði og fagmennsku. Um er að ræða starf sem býður upp á ábyrgt og gefandi hlutverk í nánu starfsumhverfi með möguleika á sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraflutningar og viðbrögð við bráðatilvikum á starfssvæði Þórshafnar
Meta áverka eftir slys, veita fyrstu hjálp og bráðhjálp á vettvangi
Tryggja örugga flutninga og umönnun sjúklinga í samræmi við verklagsreglur
Sinnir útköllum í neyðartilvikum svo sem við bíl eða flugslys, umhverfisslys eða veðurofsa ásamt bráðaveikinda
Umhirða sjúkrabíla og umsjón með að allur búnaður sé til staðar og í lagi
Samstarf við heilbrigðisstarfsfólk, slökkvilið og aðra viðbragðsaðila
Viðhald færni og þekkingar í samræmi við fagleg viðmið og reglur
Unnið eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis
Gilt ökuskírteini er skilyrði og kostur að vera með gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi)
Reynsla af störfum sjúkraflutningamanna er ákjósanlegt og reynsla af öðrum störfum í heilbrigðisgeiranum mikill kostur
Góðir líkamsburðir og mjög gott líkamlegt og andlegt heilbrigði
Geta til að geta unnið undir álagi
Gott siðferði, almenn reglusemi og háttvísi
Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt hugafar
Frumkvæði, þagmælska og fagmennska í vinnubrögðum
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Gerð er krafa um áreiðanleika í starfi og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Tekið er á móti umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðum um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimiluð á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 10-100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Halldórsson
yfirlæknir Húsavík og N-Þing
Tölvupóstur: sigurdur.halldorsson@hsn.is
Sími: 432 4911

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningamaður óskast til starfa á HSN Þórshöfn
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
10-100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
05.06.2026