Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir - HSN á Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.05.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Læknir - HSN á Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir að ráða lækni til starfa á Blönduósi. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi fær einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun og mótun heilbrigðisþjónustu í nánu samstarfi við stjórnendur og öflugt fagfólk. Starfið hentar vel metnaðarfullum aðila sem vill taka virkan þátt í að þróa þjónustu sem skiptir samfélagið miklu máli.

Næsti yfirmaður er yfirlæknir HSN á Blönduósi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Á Blönduósi ríkir góð liðsheild, mikil starfsánægja og sterk samvinnumenning. HSN á Blönduósi er jafnframt Heilsueflandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á vellíðan í starfi, eflingu heilbrigðrar starfsmenningar og betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almennar lækningar og heilsuvernd s.s. móttaka, greining og meðferð sjúklinga

  • Vaktþjónusta

  • Virk þátttaka í teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi

  • Fræðsla og kennsla starfsfólks og nema

  • Þátttaka í gæða- og þróunarstarfi, þar með talið umbótaverkefnum

  • Mótun og þróun heilbrigðisþjónustu í samstarfi við stjórnendur

  • Skráning og meðferð gagna samkvæmt viðeigandi verklagi og gæðaviðmiðum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi- kostur ef viðkomandi er með sérfræðileyfi í heimilislækningum

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Faglegur metnaður, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í þverfaglegu teymi

  • Frumkvæði, fagmennska og skipulagshæfni

  • Hæfni til að miðla þekkingu og sinna fræðslu til samstarfsfólks og nema

  • Farsæl reynsla eða áhugi á teymisvinnu

  • Góð almenn íslensku- og tölvukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingarinnar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi stofnunarinnar eru Fagmennska - samvinna - virðing.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. HSN sinnir einnig sálfélagslegri þjónustu á svæðinu. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og á Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi til Þórshafnar eru rúm 37.000 og starfsfólk er um 800 talsins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Dóra Clarke

framkvæmdastjóri lækninga

Tölvupóstur: gudrun.dora.clarke@hsn.is

Sími: 896 2495

Hildur Ösp Gylfadóttir

framkvæmdastjóri mannauðs

Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is

Sími: 825 7986

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir - HSN á Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.05.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026