Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í ígræðsluteymi Landspítala sem staðsett er á almennri göngudeild 10E við Hringbraut. Á ígræðslugöngudeild er sjúklingum og fjölskyldum þeirra sem eru í undirbúningi fyrir ígræðslu nýra eða lifrar sinnt með fræðslu og stuðningi, einnig nýrnagjöfum. Jafnframt fer þar fram eftirmeðferð hjá þessum sjúklingahópum ásamt hjartaþegum. Samvinna er við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð. Ígræðsluteymið er mannað tveimur hjúkrunarfræðingum og ritara sem vinna náið með sérfræðilæknum og öðrum fagaðilum.

Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 80-100% dagvinna og er starfið laust frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Á göngudeild 10E eru einnig sérhæfðar teymismóttökur á sviði skurð- og lyflækninga s.s. meltingarteymi, kviðarhols- og stómateymi og einnig móttaka í sárameðferðir og innrennsli. Þá eru þar innskriftir skurðsérgreina við Hringbraut og svæfingar fyrir allan spítalann. Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun en þar starfar öflugur hópur reyndra hjúkrunarfræðinga og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og eftirlit með líffæraþegum fyrir og eftir líffæraígræðslur

  • Eftirlit með lifandi líffæragjöfum fyrir og eftir aðgerð

  • Samskipti við erlenda aðila

  • Skráning gagna

  • Þverfagleg teymisvinna með sérfræðilæknum og ýmsum fagaðilum Landspítala

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Magnúsdóttir

Tölvupóstur: ingibjma@landspitali.is

Sími: 620-2655

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026