Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Háskóli Íslands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri skólans og ber ábyrgð á að tryggja skilvirkan rekstur, öfluga fjármálastjórnun og samhæfingu sameiginlegrar stjórnsýslu í samræmi við stefnu og lögbundið hlutverk skólans.

Framkvæmdastjóri er hluti af stjórnendateymi Háskóla Íslands og starfar náið með rektor, aðstoðarrektorum og öðrum stjórnendum skólans að þróun og samþættingu starfseminnar. Starfið heyrir undir rektor.

Undir framkvæmdastjóra heyra fjögur stoðsvið, þ.e. fjármálasvið, framkvæmda- og tæknisvið, mannauðssvið og upplýsingatæknisvið. Sviðsstjórar viðkomandi sviða fara með faglega ábyrgð og daglega stjórnun en framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón með samhæfingu þeirra og framgangi verkefna í þágu skólans í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á rekstri skólans í umboði rektors

  • Ábyrgð á að starfsemi skólans sé í samræmi við lög, reglur og stefnu hans

  • Fagleg og rekstrarleg ábyrgð og umbætur á þeim sviðum sem heyra undir framkvæmdastjóra

  • Ábyrgð á gæðum og samhæfingu stjórnsýslu og stoðþjónustu skólans

  • Ábyrgð á skipulagi og þróun húsnæðismála skólans

  • Þátttaka í stefnumótun

  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði stjórnsýslu og fjármála háskóla

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi, doktorspróf er kostur

  • Farsæl reynsla af stjórnun og forystu, þ.m.t. að stýra og leiða breytingar

  • Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er æskileg

  • Reynsla af starfi í háskólaumhverfi er kostur

  • Leiðtogahæfni og samskiptafærni

  • Frumkvæði og skipulagshæfni

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

HÍ er stærsti háskóli landsins og býður upp á mjög fjölbreytt nám á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 13.000 nemar eru í skólanum, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir.

Við HÍ starfa yfir 1.800 manns. Háskólinn leggur áherslu á að laða fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragnhildur Ísaksdóttir

Tölvupóstur: ragnhildurisaks@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026