
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
10.06.2026
Sjúkraþjálfari - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Ný bráðamatsdeild er að opna og við leitum eftir metnaðarfullum sjúkraþjálfara sem vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu deildarinnar frá upphafi.
Starfshlutfall er 100% og starfið er laust frá og með 01.09.2026
Bráðamatsdeildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er skipulögð að breskri fyrirmynd. Bráðamatsdeildin verður 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Markmið deildarinnar er að tryggja hratt og markvisst mat, greiningu og meðferð sjúklinga með samþættri teymisvinnu og skýrum ferlum.
Meginhlutverk sjúkraþjálfara á bráðamatsdeild er að meta hreyfigetu sjúklinga, veita viðeigandi meðferð, koma að útvegun hjálpartækja, útbúa beiðnir í áframhaldandi sjúkraþjálfun og stuðla að virkjun flýtimeðferða í samstarfi við stofur sjúkraþjálfara þegar slíkt á við. Starfið er afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.
Starfið er dagvinna á virkum dögum en að lokinni aðlögun gefst möguleiki á að taka þátt í gæsluvöktum á kvöldin og um helgar.
Í sjúkraþjálfun á Landspítala er lögð áhersla á fagþróun, rannsóknir, kennslu og þverfaglegt samstarf. Vellíðan starfsfólks er í forgrunni og hlúð er að jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs, með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika sem nýtist bæði starfsfólki og vinnustaðnum. Einnig eru í boði samgöngusamningur og önnur starfstengd fríðindi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skoðun, mat og meðferð sjúklinga
Skráning í sjúkraskrárkerfi
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þróun verkferla og verklags á nýrri deild
Virk þátttaka í faglegri þróun
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Góð íslensku kunnátta
Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður S Einarsdóttir
Tölvupóstur: ragnheie@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
10.06.2026