Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingar í heimilslækningum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Sérfræðingar í heimilslækningum
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er með lausar stöður sérfræðilækna í heimilislækningum.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Starfinu fylgir vaktaskylda.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Mikil uppbygging er á HSS og innleiðing á stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka sjúklinga á heilsugæslu. Þátttaka í umbótaverkefnum, teymisvinnu og þróun í samvinnu við yfirlækni. Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta ásamt umbótavinnu.
Læknar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum lækna og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðileyfi í heimilislækningum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Brennandi áhugi á þróun þjónustunnar
Jákvætt viðmót, hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að starfa í teymi
Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur, þrautseigja og árangursmiðað viðhorf
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi ítarleg náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf, ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum, viðtölum við umsækjendur og/eða umsögnum.
Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Starfshlutfall er samningsatriði.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Snorri Björnsson
Tölvupóstur: snorri.bjornsson@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingar í heimilslækningum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026