Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Suðurlandi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

10.06.2026

Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Suðurlandi

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða forstöðumann þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi. Forstöðumaður þjónustuskrifstofunnar er staðsettur á Selfossi.

Þjónustusvæði skrifstofunnar nær frá Hellisheiðarvirkjun að Hornafirði.

Forstöðumaður ber ábyrgð á og annast daglegan rekstur, stjórn og framkvæmd verkefna þjónustuskrifstofunnar.

Meðal verkefna þjónustuskrifstofunnar eru ráðgjöf og þjónusta við atvinnuleitendur, atvinna með stuðningi, flóttamenn, atvinnurekendur og samskipti við hagsmunaaðilar á svæðinu.

Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustusviðs Vinnumálastofnunar.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á rekstri þjónustuskrifstofunnar.

  • Ber ábyrgð á stjórnun og starfsmannahaldi þjónustuskrifstofunnar.

  • Tekur þátt í öllum daglegum verkefnum þjónustuskrifstofunnar eftir þörfum.

  • Fylgist með árangri þjónustunnar og stuðlar að framþróun hennar.

  • Byggir upp og viðheldur samskipti við hagaðila s.s. félagsþjónustur, atvinnulíf á svæðinu og fræðsluaðila.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Stjórnendamenntun og stjórnendareynsla er kostur.

  • Stjórnunarhæfni.

  • Skipulagshæfni¿og lausnamiðuð hugsun.

  • Þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga er kostur.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði og metnaður í starfi.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Stafræn færni til að nýta við framkvæmd og framþróun þjónustuskrifstofunnar er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fyrir 1. september 2026.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svava Júlía Jónsdóttir

sviðsstjóri

Tölvupóstur: svava.j.jonsdottir@vmst.is

Sími: 5154800

Hallveig Gróa Ragnarsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: mannaudssvid@vmst.is

Sími: 5154800

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Suðurlandi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

10.06.2026