Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Seyðisfjörður - Hjúkrunarheimilið Fossahlíð - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Seyðisfjörður - Hjúkrunarheimilið Fossahlíð - SUMARAFLEYSING 2026
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun í sumarafleysingar á hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunarheimili.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta er áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Guðveig Sigurðardóttir
Tölvupóstur: kristin.g.sigurdardottir@hsa.is
Sigurveig Gísladóttir
Tölvupóstur: sigurveig.gisladottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður við hjúkrun - Seyðisfjörður - Hjúkrunarheimilið Fossahlíð - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026