Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Meðferðaraðili við dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Meðferðaraðili við dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Langar þig að starfa í umhverfi þar sem fagmennska og þróun á þjónustu eru höfð að leiðarljósi og þú hefur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum meðferðaraðila (sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, iðjuþjálfa eða félagsráðgjafa) til starfa á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 80-100% ótímabundna stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Á deildinni starfar öflugt þverfaglegt teymi sem veitir gagnreynda, einstaklingsmiðaða og samþætta þjónustu til einstaklinga með flókinn geðrænan vanda. Undanfarin misseri hefur dag- og göngudeild geðdeildar staðið í umfangsmikilli umbótarvinnu þar sem lögð hefur verið áhersla á að þróa fjölbreytta og mikilvæga meðferð og stuðning fyrir skjólstæðinga 18 ára og eldri. Einn af hornsteinum starfseminnar er öflug teymisvinna þvert á fagstéttir, þar sem meðferðaraðilar gegna lykilhlutverki. Starfið býður jafnframt upp á einstakt tækifæri til starfsþróunar, nýtingar sérhæfðrar þekkingar og þátttöku í mótun nútímalegrar geðheilbrigðisþjónustu í samræmi við alþjóðleg viðmið og framtíðarsýn.
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Starfið býður upp á margvísleg tækifæri í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og meðferðarvinna skjólstæðinga og þjónusta við þá í formi einstaklings- og hópameðferðar
Samvinna við skjólstæðinga, fjölskyldur og samstarfsfólk þvert á faggreinar með það að markmiði að veita sem besta þjónustu við viðkomandi og/eða fjölskyldu hans
Samstarf við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Ábyrgð á þróun starfs og gæðum þjónustu gagnvart skjólstæðingum
Þátttaka í starfsþjálfun og handleiðslu nema og nýrra starfsmanna ásamt miðlun fræðslu
Þátttaka í þróun sinnar einingar hvað varðar skipulag, stefnumótun og framkvæmd starfseminnar
Fagleg tengsl og samráð við samstarfsaðila innan og utan stofnunar
Heldur utan um skýrslur og skráir upplýsingar í þar til gerð sjúkraskrárkerfi um meðferð skjólstæðinga, tryggir að allar upplýsingar séu skráðar með viðeigandi lögum og reglum og árangursmetur þjónustuna og þróun hennar.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi og íslenskt starfsleyfi í viðeigandi heilbrigðisstétt (t.d. sálfræði, hjúkrun, félagsráðgjöf, iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun)
Þekking og reynsla af mati og meðferð einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda, æskileg
Reynsla af því að stýra og sinna hópameðferðum er kostur
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta er kostur¿
Auk fagþekkingar er lögð áhersla á frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og að viðkomandi hafi hæfileika á sviði samskipta og samvinnu.
Sveigjanleiki og geta til að starfa í breytilegu og krefjandi umhverfi
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustaða og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Meðferðaraðili við dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026