
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir - HSN á Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Yfirlæknir - HSN á Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir að ráða sjálfstæðan, metnaðarfullan og árangursdrifinn yfirlækni á starfsstöð okkar á Blönduósi.
Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir leiðtoga í heilbrigðisþjónustu sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun og skipulag þjónustu í nærumhverfi. Yfirlæknir gegnir lykilhlutverki í að móta faglega sýn og efla gæði þjónustunnar í nánu samstarfi við öflugt teymi, þar á meðal yfirhjúkrunarfræðing svæðis, forstöðumann sálfélagslegrar þjónustu og annað starfsfólk.
Hjá HSN er lögð rík áhersla á gott samráð, teymisvinnu og skýra sameiginlega framtíðarsýn. Við bjóðum upp á styðjandi og faglegt starfsumhverfi þar sem velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og góður starfsandi ríkir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar og heilsuvernd
Vaktþjónusta
Fagleg, fjárhagsleg og stjórnunarleg ábyrgð á læknisfræðilegum þáttum starfseminnar
Vinna samkvæmt stefnu og áherslum HSN
Stjórnun mannauðs og stuðningur við starfsfólk
Þróun þjónustunnar á svæðinu
Stuðla að öryggi, gæðum og hagkvæmni í rekstri
Stuðla að góðu samstarfi við aðrar stofnanir og hagsmunaaðila
Hæfniskröfur
Íslenskt lækninga- og sérfræðileyfi í heimilislækningum er skilyrði, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Haldbær reynsla af starfi við heimilislækningar
Framúrskarandi samskiptahæfni og farsæl reynsla af teymisvinnu
Stjórnunarhæfileikar og einlægur áhugi á stjórnun
Leiðtogahæfileikar s.s. færni til að virkja og leiða starfsfólk til góðra verka
Áreiðanleiki og helgun í starfi
Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
Afburða skipulagshæfni
Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingarinnar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi stofnunarinnar eru Fagmennska - samvinna - virðing.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. HSN sinnir einnig sálfélagslegri þjónustu á svæðinu. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og á Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi til Þórshafnar eru rúm 37.000 og starfsfólk er rúmlega 800 talsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Ösp Gylfadóttir
framkvæmdastjóri mannauðs
Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is
Sími: 825 7986

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir - HSN á Blönduósi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.05.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026