
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis
Hafrannsóknastofnun leita að öflugum sérfræðingi með áhuga á áhrifum sjókvíaeldis á umhverfið og sjálfbærni. Viðkomandi verður hluti af teymi á Umhverfissviði sem sinnir margvíslegum og krefjandi verkefnum sem stuðla að eflingu þekkingar á þoli fjarða til sjókvíaeldis og áhrifum eldis á vistkerfi fjarða með langtímavöktun, líkanagerð og markvissum rannsóknum. Niðurstöðurnar eru nýttar til ráðgjafar og álitsgerða, en að auki er lögð áhersla á miðlun gagna og upplýsinga til mismunandi markhópa.
Starfið er fjölbreytt og spannar allt frá hagnýtri vinnu við sýnatöku til túlkunar og þátttöku í stefnumótun. Viðkomandi tekur jafnframt þátt í öðrum verkefnum stofnunarinnar eftir þörfum. Starfsstöð getur verið í Hafnarfirði, á Ísafirði eða í Neskaupsstað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í skipulagningu rannsókna og framkvæmd rannsókna og vöktunar á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis.
Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum, sýnatöku og úrvinnslu sýna.
Úrvinnsla, greining og túlkun gagna.
Þátttaka í gerð ráðgjafar og álitsgerða.
Miðlun niðurstaðna í ræðu og riti til fagfólks, stjórnvalda og annarra hagaðila.
Þáttaka í öðrum verkefnum stofnunarinnar eftir þörfum.
Hæfniskröfur
Framhaldsmenntun í líffræði, umhverfisfræðum eða skyldum greinum.
Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt).
Þekking og reynsla af vinnu með landupplýsingakerfi er kostur.
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og skilmerkilegan hátt.
Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til teymisvinnu.
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku og íslensku skilyrði. Tök á norðurlandamáli er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Afrit af prófskírteinum (doktorspróf og/eða annað)
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sjöfn Gunnarsdóttir
Tölvupóstur: sjofn.gunnarsdottir@hafogvatn.is

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026