
Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Hamrahlíð auglýsir stöðu konrektors (100% starf) frá og með 1. ágúst 2026, til fimm ára. Menntaskólinn við Hamrahlíð er framhaldsskóli sem byggir á áfangakerfi. Boðið er upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum og alþjóðlegri námsbraut, IB-braut, auk náms á fjölnámsbraut. Rúmlega 100 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru rúmlega 1000.
Helstu verkefni og ábyrgð
Konrektor er staðgengill rektors og vinnur með honum við daglega stjórn skólans og rekstur.
Yfirumsjón með gæðastarfi og sjálfsmati skólans.
Yfirumsjón með námskrám skólans.
Ábyrgð á kennsluskiptingu og áætlanagerð um kennslu.
Ábyrgð á námsframboði.
Yfirumsjón með skólareglum.
Yfirumsjón með framkvæmd útskriftar, þ.m.t. gerð og prentun skírteina.
Yfirumsjón með starfi kennara, nemenda og annarra starfsmanna skólans.
Yfirumsjón með innritun nemenda.
Yfirumsjón með kennsluaðstöðu.
Ráðgjöf og aðstoð í INNU.
Ráðgjöf til kennara vegna kennslutengdra verkefna.
Samráð við námstjóra og töflusmiði vegna stundataflna.
Samráð við IB-stallara vegna innritunar, umfangs og utanumhalds á IB-braut.
Samskipti við ytri aðila, t.d. vegna kannana.
Önnur verkefni í samráði við rektor.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa rétt til að nota starfsheitið kennari, hafa mikla reynslu af kennslu í framhaldsskóla og reynslu eða menntun í stjórnun.
Aðrar hæfniskröfur:
Búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.
Búa yfir samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt.
Reynsla á sviði stjórnunar eða stjórnendamenntun.
Mjög góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is, og skal náms- og starfsferilsskrá fylgja með innsendri umsókn ásamt þeim gögnum í viðhengi sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. prófskírteinum. Innsend gögn verða lögð til grundvallar við ráðningu. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: rektor@mh.is

Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026