Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - sértækar rannsóknir

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

05.06.2026

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - sértækar rannsóknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns rannsóknardeildar sem fer með sértækar rannsóknir. Til sértækra rannsóknaraðferða teljast þau úrræði sem falla undir 80. - 82. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og þær aðferðir og aðgerðir sem beitt er á grundvelli reglugerðar nr. 516/2011. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf sem heyrir til yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 480 talsins á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár að prófi loknu, sbr. 3 mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns eru tilgreind í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu þ.á.m. stjórn og ábyrgð á deild og tilteknum verkefnum sem þarfnast sérstakrar þekkingar og að eftirlit með reglum og fyrirmælum sé fylgt.

Í starfinu felst auk þess meðal annars:

  • Stjórn og ábyrgð á starfsemi rannsóknardeildar sem fer með sértækar rannsóknaraðferðir.

  • Tryggja að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið LRH.

  • Leiða og koma að umbótastarfi innan embættisins.

  • Stýra framkvæmd og hafa yfirsýn yfir þau verkefni sem til deildarinnar heyra í samráði við yfirlögregluþjón.

  • Eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt og að fjárhagslegur rekstur sé innan fjárheimilda.

  • Ábyrgð á starfsmannamálum í samráði við yfirlögregluþjón og mannauðsstjóra þ.m.t. að gæta þess að starfsmannastefnu og viðeigandi lögum sé framfylgt, tryggja mönnun og meta þörf fyrir fræðslu og menntun starfsfólks.

  • Halda skrá um tækjabúnað deildarinnar og gera tillögur um viðhald og/eða kaup búnaðar.

  • Bera ábyrgð á að vel sé gengið um tækjabúnað og húsakynni.

  • Samskipti við hagsmunaaðila.

  • Tryggja gott samstarf við ákærusvið, rannsóknardeildir, almenna löggæslu og e.a. atvikum önnur embætti.

  • Fylgjast með þróun og nýjungum og taka þátt í að móta verklag, verkferla og stefnu.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu.

  • Farsæl reynsla af stjórnun innan lögreglu, skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum.

  • Mikil og góð reynsla af verkefnum sem falla til sértækra rannsókna, þ.m.t. þróun, uppbygging, uppsetning og virkni búnaðar.

  • Þekking og reynsla af búnaði, tækjum og samskiptum við hagaðila sem þar koma að.

  • Reynsla af umbótastarfi og umbótum verkferla.

  • Leiðtogahæfni, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol.

  • Brennandi áhugi á umbótastarfi og á að efla starfsfólk í störfum sínum.

  • Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli.

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin.

Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglusbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elín Agnes Eide Kristínardóttir

Yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: 9206@lrh.is

Sími: 444-1000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðaryfirlögregluþjónn - sértækar rannsóknir

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

05.06.2026