Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hafeðlisfræði/ hafeðlisfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.05.2026

Umsóknarfrestur

11.06.2026

Sérfræðingur í hafeðlisfræði/ hafeðlisfræðingur

Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir sérfræðingi á sviði hafeðlisfræði á Umhverfissvið stofnunarinnar.

Sérfræðingurinn mun starfa með alþjóðlegu og þverfaglegu teymi á sviði hafrannsókna og vistkerfisrannsókna að verkefnum sem stuðla að eflingu þekkingar og vísindalegrar ráðgjafar. Starfið felur einkum í sér rannsóknir á vísindalegum áskorunum sem tengjast hafi, loftslagi og vistkerfum. Vinnan er fjölbreytt og felur m.a. í sér söfnun, úrvinnslu og greiningu gagna, miðlun vísindalegrar þekkingar, birtingar niðurstaðna í ritrýndum vísindatímaritum, ritun skýrslna og styrkumsókna, sem og leiðsögn nemenda og annarra starfsmanna. Starfið getur einnig falið í sér þátttöku í rannsóknaleiðöngrum og vinnu með rannsóknabúnað, bæði á skipum og mælistöðvum.

Stafið er einnig auglýst á vefsíðunni Reasearchgate: PHYSICAL OCEANOGRAPHER at Marine and Freshwater Research Institute in Hafnarfjörður, ICELAND

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og taka þátt í rannsóknaverkefnum á sviði haffræði og vistfræði.

  • Söfnun, úrvinnsla og greining gagna.

  • Miðlun þekkingar til vísindasamfélags, stjórnvalda og hagsmunaaðila.

  • Ritun vísindagreina, skýrslna og umsókna um rannsóknarstyrki

  • Þátttaka í ráðgjafarvinnu eftir þörfum

  • Samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila

  • Leiðsögn og miðlun þekkingar innan teymis

  • Þátttaka í mælingum og rannsóknaferðum á rannsóknarskipum

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í hafeðlisfræði eða skyldum greinum.

  • Reynsla af rannsóknum og birtingum í ritrýndum tímaritum

  • Reynsla af gerð styrkumsókna er kostur

  • Færni í að miðla vísindalegum upplýsingum til ólíkra viðtakenda.

  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð nálgun.

  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.

  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku.

  • Færni til að tjá sig á íslensku er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Umsókninni skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá

  • Afrit af prófskírteinum (doktorspróf og/eða annað)

  • Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.

  • Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra

Athugið:

  • Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.

  • Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

  • Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.

Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir

Um stofnunina

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Egilsdóttir

Sviðsstjóri Umhverissvið

Tölvupóstur: hronn.egilsdottir@hafogvatn.is

Sími: 6956705

Steingrímur Jónsson

sérfræðingur í hafeðlisfræði

Tölvupóstur: steingrimur.jonsson@hafogvatn.is

Þjónustuaðili

Hafrann­sókna­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hafeðlisfræði/ hafeðlisfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.05.2026

Umsóknarfrestur

11.06.2026