Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningar - Seyðisfjörður - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Sjúkraflutningar - Seyðisfjörður - Afleysing
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann í afleysingu á starfsstöð HSA á Seyðisfirði til að sinna sjúkraflutningum á vöktum en starfsfyrirkomulag og starfshlutfall er samningsatriði. Um áhugavert og fjölbreytt starf er að ræða. Áhugasamir, konur jafnt sem karlar, eru hvattir til þess að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að sinna sjúkraflutningum á dagvinnutíma. Samhliða mun viðkomandi vinna við önnur störf innan stofnunarinnar samkvæmt samkomulagi, menntun og færni umsækjanda, en ýmislegt getur komið til greina.
Hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa starfsleyfi sjúkraflutningamanns útgefið af Embætti Landlæknis. Neyðarflutingsréttindi er kostur og séu þau ekki til staðar þarf viðkomandi að vera reiðubúinn til að afla sér þeirra. Meirapróf er skilyrði. Gerð er krafa um gott líkamlegt og andlegt atgerfi. Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Halla Dröfn Þorsteinsdóttir
Tölvupóstur: halla.d.thorsteinsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraflutningar - Seyðisfjörður - Afleysing
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026