Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntamála - Hérna er framtíðin búin til!
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Sérfræðingur á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntamála - Hérna er framtíðin búin til!
Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi til starfa á málefnasviði framhaldsfræðslu og starfsmenntamála á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og kallar á skapandi, jákvæðan og skipulagðan einstakling með góða greiningarhæfni, frumkvæði og frjóa hugsun sem getur unnið sjálfstætt en blómstrar jafnframt í hópavinnu. Ef þú brennur fyrir menntamálum og býrð yfir þessum kostum þá gæti þetta verið draumastarfið!
Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta framtíðina í ráðuneyti sem ætlar sér að vera leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stefnumótun á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntamála.
Greiningarvinna, innleiðing verkefna og eftirfylgni.
Þátttaka í endurskoðun laga og reglugerða.
Samskipti og samstarf við ráðuneyti, stofnanir ríkisins, samningsaðila og aðra hagaðila.
Afla upplýsinga og svara fyrirspurnum.
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
Önnur tilfallandi verkefni sem heyra undir ráðuneytið.
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði kennslu- og/eða menntunarfræða, stefnumótunar eða sambærilegra greina.
Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu.
Þekking og reynsla á sviði starfsmenntamála.
Þekking og reynsla á sviði framhaldsfræðslu er skilyrði, en þekking á sviði framhaldsskóla er kostur.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.
Við ráðningar í störf hjá mennta- og barnamálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntamála - Hérna er framtíðin búin til!
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.05.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026