Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknir á áhrifum umritunar á frumusérhæfingu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Doktorsnemi við rannsóknir á áhrifum umritunar á frumusérhæfingu

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við rannsóknir á sameindaferlum og stjórnun umritunar í stofnfrumum úr fósturvísum og frumkímfrumum músa við Háskóla Íslands.

Verkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Vísinda- og nýsköpunarráðs og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands, undir leiðsögn Ernu Magnúsdóttur, dósent við Læknadeild. Doktorsneminn mun jafnframt vera tengdur framhaldsnámi í lífvísindum (GPMLS) sem er sameiginlegt verkefni allra rannsóknahópa í lífvísindum við Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rannsaka stjórnun umritunar við frumusérhæfingu, með það að markmiði að varpa ljósi á þá sameindaferla sem stjórna frumusérhæfingu á frumfóstursskeiði með áherslu á ákvörðun frumkímfruma sem gefa af sér kynfrumur.

  • Sérhæfing frumkímfruma úr stofnfrumum úr fósturvísum músa auk þess að beita nýjustu aðferðum við að meta bindingu umritunarþátta við litni á heilerfðamengisskala, eins og CUT&RUN, sem og RNA raðgreiningu á stökum frumum (scRNAseq).

  • Beita hefðbundnari sameindalíffræðilegum-, lífefnafræðilegum- og frumulíffræðilegum aðferðum auk CRISPR-Cas9 erfðabreytingartækninnar.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í lífefnafræði, sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefnafræði-, sameindalíffræði- og frumulíffræðilegum aðferðum.

  • Reynsla af ræktun spendýrafruma.

  • Góð tölvufærni æskileg.

  • Góð enskukunnátta.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark tvær blaðsíður).

  • Ferilskrá.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.

  • Yfirlit yfir birtingar.

  • Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Magnúsdóttir

dósent

Tölvupóstur: erna@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknir á áhrifum umritunar á frumusérhæfingu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026