
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
02.06.2026
Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Laust til umsóknar skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga B1 í Fossvogi. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Deildin var opnuð fyrir fjórum árum og er hluti af bráðaþjónustu spítalans. Við sinnum bráðatilfellum, frá bráðamóttöku og frá heilsugæslu, sýklalyfjagjöfum í æð og fleiru. Á deildinni starfar hópur áhugasamra lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og mikil þróunarvinna í gangi. Miklar breytingar eiga sér nú stað í bráðaþjónustu Landspítala og mikil tækifæri fólgin í að taka þátt í þeim fyrir framsækinn einstakling.
Við sækjumst eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er lausnamiðaður, sjálfstæður í starfi, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi.
Ráðið verður í starfið í ágúst 2026. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn og sérhæfð ritarastörf, s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala
Þjónusta við skjólstæðinga, aðstandendur og samstarfsfólk
Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Skipulögð vinnubrögð og geta til vinna undir álagi
Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
Þekking á kerfum Landspítala er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í máli og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofustörf, móttaka, ritari, símsvörun,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Hólmfr Sverrisdóttir
Tölvupóstur: solvsver@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
02.06.2026