Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026

Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti

Við viljum ráða sjúkraliða til starfa fyrir haustið sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða.

Öldrunardeild er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur. Þar dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun. Unnið er í vaktavinnu og er vinnufyrirkomulag og starfshlutfall samkomulag. Starfið er laust frá og með 1. júlí 2026.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Áhugi á hjúkrun aldraðra

  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Starfamerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sesselja Lind Magnúsdóttir

Tölvupóstur: sesselma@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á öldrunardeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.05.2026

Umsóknarfrestur

12.06.2026