Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
21.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum stjórnanda til að leiða starfsemi þjónustuvers hjá Stafrænni heilsu í heilbrigðisráðuneytinu.
Þjónustuverið sinnir allri framlínu- og notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni Stafrænnar heilsu, ásamt daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða. Yfirmaður þjónustuvers er mikilvægur þátttakandi í þróunarverkefnum sem snúa að klínískri starfsemi. Verkefni einingarinnar eru fjölbreytt og krefjandi í einu stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins.
Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Markmið Stafrænnar heilsu er að leiða þróun og þjónustu stafrænnar heilbrigðisþjónustu á landsvísu og að veita framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða starfsemi þjónustuvers með það að markmiði að hámarka ánægju notenda
Leiða stefnumótun og framþróun einingarinnar, auka skilvirkni og gæði þjónustu
Ábyrgð á þjónustuupplifun og þjónustumælingum sem styðja markmið og tryggja framúrskarandi þjónustu
Stuðla að góðu samstarfi og samskiptum við opinberar heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila
Seta í leiðtogateymi Stafrænnar heilsu
Hæfniskröfur
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg
Farsæl stjórnunarreynsla á sviði tækniþjónustu, upplýsingatækni og/eða heilbrigðistækni er æskileg
Þekking á ITIL, beiðnakerfum og gæðaferlum er æskileg
Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð
Drifkraftur, stefnumótandi hugsun og frumkvæði í starfi
Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026 og kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
21.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026