
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Læknar óskast í spennandi uppbyggingu teymismiðaðar heilsugæslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
18.06.2026
Umsóknarfrestur
02.07.2026
Læknar óskast í spennandi uppbyggingu teymismiðaðar heilsugæslu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir eftir þremur sérfræðilæknum sem munu gegna lykilhlutverki í þróun og innleiðingu nýrrar aðferðafræði í heilsugæslu.
Unnið verður eftir nýju þjónustulíkani og breyttu verklagi þar sem teymisvinna fjölbreyttra heilbrigðisstétta og forflokkun erinda verða í forgrunni.
Markmiðið með teymismiðaðri heilsugæslu er að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem best. Þetta er þróun sem styrkir þverfaglega samvinnu og gefur læknum meira svigrúm til að einbeita sér að málum skjólstæðinga sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda. Öll erindi verða forflokkuð af reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og komið í réttan farveg hjá þeim heilbrigðisstarfsmanni sem er best til þess fallinn að leysa úr því. Teymisvinna verður lykillinn að enn betri þjónustu við skjólstæðinga.
Heilsugæslan Efra-Breiðholti verður fyrsta heilsugæslustöðin til að formlega innleiða nýtt þjónustulíkan innan HH. Stöðin mun því gegna lykilhlutverki í þróun heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og verða fyrirmynd fyrir aðrar heilsugæslur.
Við bjóðum upp á:
Þverfaglegt teymisumhverfi þar sem sérfræðiþekking lækna nýtist að fullu.
Tækifæri til að móta nýtt þjónustulíkan fyrir HH.
Stuðning¿við faglega þróun og þátttöku í rannsóknarverkefnum.
Nýtt launamódel sem tryggir samkeppnishæf laun og góð starfskjör.
Góða starfsaðstöðu í húsnæði sem er sérhannað fyrir heilsugæslu
Um er að ræða ótímabundin störf í 60-100% starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst / september nk. eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sérfræðilækna er víðtækt á heilsugæslu og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, opinni móttöku og handleiðslu nema og unglækna. Þeir veita fræðslu og upplýsingar og leiðbeina skjólstæðingum og aðstandendum. Læknar á Heilsugæslunni Efra breiðholti munu gegna lykilhlutverki í innleiðingu á nýju þjónustulíkan og taka virkan þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Læknar munu starfa í þverfaglegu teymi með öflugu starfsfólki annarra fagstétta hjá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti. Þar starfa sjúkraþjálfarar, sjúkraliðar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður. Stöðin hefur að auki öfluga heilsueflandi móttöku og heilsuvernd aldraða þar sem lífstílshjúkrunarfræðingur og öldrunarhjúkrunarfræðingur starfa.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningarleyfi
Sérfræðimenntun í heimilislækningum eða að viðkomandi sé á lokastigi sérfræðimenntunar
Áhugi á umbótaferli, breytingum og þróun heilsugæsluþjónustu
Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5300

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Læknar óskast í spennandi uppbyggingu teymismiðaðar heilsugæslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
18.06.2026
Umsóknarfrestur
02.07.2026