
Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur - Bókhaldsþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026
Sérfræðingur - Bókhaldsþjónusta
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í tímabundna ráðningu til 2ja ára á fjármálasvið Fjársýslunnar. Í boði er 100% starf en til greina kemur hlutastarf sem gæti hentað háskólanema í framhaldsnámi vel.
Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við faglegar áskoranir, mótun verkferla í síkviku umhverfi Fjársýslunnar. Við bjóðum upp á krefjandi verkefni í skemmtilegu verkefnamiðuðu vinnuumhverfi í nýju húsnæði, þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu og þekkingarmiðlun starfsfólks.
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun sem veitir fjölbreytta þjónustu á sviði fjármála og mannauðsmála ríkisins. Á fjármálasviði starfar öflugur hópur sérfræðinga við þjónustu og ráðgjöf í bókhaldi og uppgjöri fyrir ríkið. Unnið er markvisst að stafrænni vegferð og framþróun í verklagi. Áhersla er á að veita ríkisaðilum framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón, ráðgjöf og eftirlit með bókhaldi aðila í þjónustu
Afstemmingar og uppgjör
Þátttaka í framþróun verklags
Skil á gögnum og upplýsingagjöf til opinberra aðila
Hæfniskröfur
Háskólagráða í viðskiptafræðitengdum greinum
Reynsla af bókhaldsvinnu er kostur
Góð kunnátta á Excel er skilyrði
Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði
Rík þjónustulund, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptafærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar og verður öllum umsóknum svarað að ráðningu lokinni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur - Bókhaldsþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026