
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við Lífvísindasetur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026
Doktorsnemi við Lífvísindasetur
Laust er til umsóknar 70% starf doktorsnema við rannsóknaverkefni sem fjallar um Capping-ensím til mRNA framleiðslu. Verkefnið er styrkt til allt að þriggja ára af doktorsnámssjóði Háskóla Íslands og verður unnið við Lífvísindasetur Háskóla Íslands í samstarfi við líftæknifyrirtækið Ternaria. Um er að ræða fasta styrkupphæð og getur því hvort tveggja haft áhrif á ráðningartímabil og starfshlutfall. Farið verður yfir nánari útfærslu á framangreindu í ráðningarferlinu.
Doktorsneminn mun tilheyra framhaldsnámi í lífvísindum (GPMLS) sem er sameiginlegt verkefni allra rannsóknahópa í lífvísindum við Háskóla Íslands. Í verkefninu verður notast við nýjustu tækni og aðferðir til að framleiða og prófa nokkur capping ensím sem nota má til framleiðslu mRNA sem lyfja. Doktorsneminn mun kynnast helstu aðferðum í sameinda- og lífefnafræði og því helsta sem er að gerast í mRNA framleiðslu.
Eiríkur Steingrímssonar, prófessor við Læknadeild verður leiðbeinandi í verkefninu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við framleiðslu, einangrun og greiningu capping enzíma
Ábyrgð á framkvæmd og úrvinnslu tilrauna
Hönnun og framkvæmd tilrauna í samstarfi við leiðbeinenda
Vinna niðurstöður og birta gögn
Hæfniskröfur
Meistarapróf í erfðafræði, sameindalíffræði, frumulíffræði, lífefnafræði, eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Reynsla af rannsóknum á ofangreindum sviðum.
Góð þekking á tölvuvinnslu og gagnagreiningu.
Góð enskukunnátta.
Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna í teymi.
Ráðningin er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. september 2026.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark tvær blaðsíður).
Ferilskrá.
Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
Yfirlit yfir birtingar.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 11.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eiríkur Steingrímsson
Tölvupóstur: eirikurs@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við Lífvísindasetur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
01.06.2026
Umsóknarfrestur
11.06.2026