Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri rannsóknarinnar Forspá um fylgjuþurrð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Verkefnastjóri rannsóknarinnar Forspá um fylgjuþurrð

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnastjóra við Rannsóknastofu Landspítala og Háskóla Íslands í fæðinga-, kvenna-, barna- og fjölskyldufræðum (RKB). Verkefnastjórinn mun stýra söfnun gagna og sýna fyrir rannsóknina Forspá um fylgjuþurrð sem hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Rannís fyrr á þessu ári. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ráðið verður í starfið til eins árs. Um er að ræða fullt starf en til greina kemur að ráða í lægra starfshlutfall.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kynna rannsóknina innan meðgönguverndar og fæðingarþjónustu

  • Afla upplýsts samþykkis frá þátttakendum rannsóknarinnar

  • Skrá heilbrigðisgögn, senda út spurningalista og taka blóðsýni

  • Tryggja rétta merkingu lífsýna með dulkóða

  • Samstarf við blóð- og vefjameinafræðideild Landspítala

  • Utanumhald vefsíðu rannsóknarinnar

  • Skipulag og stjórn funda rannsóknarhópsins

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda

  • Góð tölvukunnátta

  • Reynsla af öflun heilbrigðisgagna er æskileg

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð með lausnamiðaða nálgun

  • Góð íslensku og enskukunnátta

  • Starfsreynsla af meðgönguvernd og/eða fæðingarþjónustu er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórn er kostur

  • Reynsla af blóðsýnatöku og vinnslu þeirra er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf í október.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Gunnarsdóttir

forstöðumaður fræðasviðs fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við Landspítala og Háskóla Íslands

Tölvupóstur: johagunn@hi.is

Sími: 8884777

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri rannsóknarinnar Forspá um fylgjuþurrð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.06.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026