Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Fjarðabyggð (aðalstarfsstöð Neskaupstaður)

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

29.05.2026

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Fjarðabyggð (aðalstarfsstöð Neskaupstaður)

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing við heilsugæsluna í Fjarðabyggð, með aðalstarfsstöð í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80-100% og staðan veitist frá 1. ágúst eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna hjúkrunarfræðings á heilsugæslu, þ.m.t. almenn heilsugæsluþjónusta s.s. ung- og smábarnavernd, heilsuvernd skólabarna og almenn hjúkrunarmóttaka.

Hæfniskröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Kostur ef viðkomandi hefur heilsugæslu sérnám og/eða reynslu í heilsugæsluhjúkrun. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir

Tölvupóstur: ragnheidur.j.runarsdottir@hsa.is

Jónína Guðrún Óskarsdóttir

Tölvupóstur: jonina.g.oskarsdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæsla - Fjarðabyggð (aðalstarfsstöð Neskaupstaður)

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

19.05.2026

Umsóknarfrestur

29.05.2026