Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á Hvammstanga
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
02.06.2026
Sérfræðingur á Hvammstanga
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings með aðsetur á þjónustuskrifstofunni á Hvammstanga. Helsta hlutverk skrifstofunnar er að annast umsýslu og ráðgjöf varðandi greiðslur fæðingarorlofs, sorgarleyfis og ættleiðingarstyrkja. Auk þess annast skrifstofan móttöku og þjónustu við atvinnuleitendur og endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna um fæðingarorlof, sorgarleyfi og ættleiðingarstyrki ásamt öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar, fyrirmyndaþjónusta, virðing og áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Úrvinnsla og afgreiðsla umsókna.
· Eftirlit með greiðslum.
· Upplýsingagjöf til umsækjenda.
· Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.
· Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.
· Reynsla af skrifstofustörfum og störfum úr stjórnsýslu er kostur.
· Góð tölvukunnátta.
· Góð tök á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórdís Helga Benediktsdóttir
forstöðumaður
Tölvupóstur: thordis.h.benediktsdottir@vmst.is
Sími: 5154800
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á Hvammstanga
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.05.2026
Umsóknarfrestur
02.06.2026