Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri í nemenda- og kennsluþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.05.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026

Verkefnisstjóri í nemenda- og kennsluþjónustu

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra í Nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs veitir heildstæða þjónustu og ráðgjöf til nemenda, kennara og deilda sviðsins er varðar nám og kennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við nemendur og kennara sviðsins

  • Tengiliður milli Nemenda- og kennsluþjónustu og deilda Félagsvísindasviðs

  • Þjónusta við deildir vegna prófa, kennsluskrár, skiptináms og annarra verkefna

  • Viðvera á Þjónustutorgi í Gimli

  • Þverfagleg teymisvinna innan sviðsins sérstaklega við rafrænt prófahald

  • Miðlun upplýsinga til nemenda á innri vef m.a. á ensku

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Rík þjónustulund, sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Góð færni til þess að tileinka sér nýja tækni

  • Gott vald á ensku og íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Frumkvæði og sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elva Ellertsdóttir

kennslustjóri

Tölvupóstur: elva@hi.is

Sími: 525-4573

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri í nemenda- og kennsluþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.05.2026

Umsóknarfrestur

01.06.2026