Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í landupplýsingum óskast á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026
Sérfræðingur í landupplýsingum óskast á Akureyri
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun óskar eftir sérfræðingi í landupplýsingum í teymi fasteignaskrár sem staðsett eru á Akureyri.
Hlutverk teymisins er að halda utan um skráningu og afmörkun fasteigna á Íslandi ásamt því að þjónusta önnur svið HMS í greiningu og vinnslu landupplýsinga. Starfstöð er á skrifstofu HMS á Akureyri.
Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum ásamt því að leggja þitt af mörkum til samfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kortlagning landmerkja jarða
Viðhald og þróun staðfangaskrár
Afmörkun og skráning fasteigna og viðhald landeignaskrár
Landfræðileg greining í samvinnu við önnur svið HMS
Kortagerð og landfræðileg miðlun upplýsinga
Gæðaeftirlit gagna til að tryggja réttleika skráninga og landupplýsinga
Þátttaka í viðhaldi og þróun skráningakerfa fasteignaskrár og miðlun upplýsinga
Þjónusta við innri og ytri viðskiptavini
Ýmis önnur verkefni sem til falla á sviðinu
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í landfræði
Reynsla af vinnslu og meðferð landupplýsinga er kostur
Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu
Skipulagshæfni, vönduð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Lipurð í samskiptum og samstarfi, þjónustulund og jákvætt viðmót
Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í hálft ár frá því að frestur rennur út.
Lögð er rík áhersla á fjölbreytni og við hvetjum alla áhugasama einstaklinga til að sækja um, óháð kyni og uppruna
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í landupplýsingum óskast á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
29.05.2026