Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi - Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026

Stuðningsfulltrúi - Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Starf stuðningsfulltrúa á næsta skólaári við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er laust til umsóknar, ráðning er frá 17. ágúst 2026. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér vinnu með nemendum á starfsbraut skólans sem þarfnast sérstakrar umönnunar og hæfingar.

Hæfniskröfur

Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfni og hafi gaman af að umgangast og vinna með ungu fólki. Gott er að viðkomandi hafi reynslu af því að aðstoða ungmenni sem þurfa sérstaka liðveislu. Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans. Viðkomandi verður jafnframt að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum og hafa gott vald á íslensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun, fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á vef hans www.fss.is

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 28.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson

Tölvupóstur: kras@fss.is

Sími: 421-3100

Guðlaug Málfríður Pálsdóttir

Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is

Sími: 421-3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi - Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

18.05.2026

Umsóknarfrestur

28.05.2026