Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Norðurlandi og Austurlandi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Norðurlandi og Austurlandi
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða forstöðumann þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í umdæmi Norðurlands og Austurlands. Forstöðumaður þjónustuskrifstofunnar er staðsettur á Akureyri.
Þjónustusvæði skrifstofunnar nær frá Austur- Húnavatnssýslu að Djúpavogi.
Forstöðumaður ber ábyrgð á og annast daglegan rekstur, stjórn og framkvæmd verkefna þjónustuskrifstofunnar.
Meðal verkefna þjónustuskrifstofunnar eru ráðgjöf og þjónusta við atvinnuleitendur, atvinnu með stuðningi, flóttamenn, atvinnurekendur og aðra hagsmunaaðila á svæðinu.
Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustusviðs Vinnumálastofnunar.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á rekstri þjónustuskrifstofunnar.
Ber ábyrgð á stjórnun og starfsmannahaldi þjónustuskrifstofunnar.
Tekur þátt í öllum daglegum verkefnum þjónustuskrifstofunnar eftir þörfum.
Fylgist með árangri þjónustunnar og stuðlar að framþróun hennar.
Byggir upp og viðheldur samskipti við hagaðila s.s. félagsþjónustur, atvinnulíf á svæðinu og fræðsluaðila.
Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Stjórnendamenntun og stjórnendareynsla er kostur.
Stjórnunarhæfni.
Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
Þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga er kostur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og metnaður í starfi.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Stafræn færni til að nýta við framkvæmd og framþróun þjónustuskrifstofunnar er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Norðurlandi og Austurlandi
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026