Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Skjalastjóri
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða skjalastjóra stofnunarinnar. Starfstöð er að Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Skjalastjóri ber m.a. ábyrgð á því að farið sé að gildandi lögum og reglum um skjalavistun opinberra aðila við vörslu og meðhöndlun skjala.
Starfið heyrir undir Þróunar- og tæknisvið og felur í sér náið samstarf með öðrum sviðum og deildum stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Þróunar- og tæknisviðs.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón og framkvæmd skjalamála, þ.m.t. umsjón með skjalakerfum, vistun, gagnaskilum, skipulagi og verklagsreglum vegna skjalakerfis.
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsmenn um skjalastjórn.
Leiðir þróun og umbætur á sviði skjalamála og innleiðingar nýjunga á verklagi við stafræna þróun skjalamála.
Ábyrgð á að farið sé eftir lagareglum um skjalavörslu og skylduskil til Þjóðskjalasafns Íslands.
Frágangur og skil rafrænna gagna og pappírs til Þjóðskjalasafns Íslands.
Þátttaka í þróun og einföldun ferla, með áherslu á stafrænar lausnir, sjálfvirkni og gagnadrifna nálgun.
Þátttaka í gæðateymi Vinnumálastofnunar.
Þátttaka í ritstjórnarteymi gæðahandbókar Vinnumálastofnunar.
Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking og reynsla af skjalastjórnun er nauðsynleg.
Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum er áskilin.
Góð tölvukunnátta sem og vilji og geta til að læra á ný tölvuforrit er skilyrði.
Þekking af gæðakerfum er kostur.
Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingaferli og þróun í gæða-, skjala- og upplýsingamálum er kostur.
Haldgóð þekking af persónuverndarmálum er kostur.
Þekking á opinberri stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála er kostur.
Góð færni til að vinna í teymi og góð samskiptafærni.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Gott vald á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026