Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

30%

Starf skráð

15.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Hjarta-, lungna og augnskurðdeild og nýrnalækningar 12G á Landspítala við Hringbraut óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling í býtibúr og ritarastarf. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Um er að ræða afleysingu í vaktavinnu virka daga og um helgar frá 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 30%.

Deildin er 16 rúma legudeild sem tilheyrir hjarta-, augn og krabbameinsþjónustu og er staðsett á 2. hæð á Landspítala við Hringbraut. Deildin er ætluð sjúklingum sem fara í hjarta-, lungna og/ eða augnaðgerðir og eru með lokastigs nýrnabilun sem og sjúklingum annarra sérgreina eftir aðstæðum. Áskoranirnar eru margar og fjölbreyttar.

Á deildinni starfar metnaðarfullur hópur ýmissa starfstétta s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, ritara og sérhæfðra starfsmanna, auk annarra stoðstétta sem koma eftir þörfum s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Á deildinni er lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks, samvinnu teyma og stöðugar umbætur.

Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju starfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starf í býtibúri

  • Aðstoð við máltíðir sjúklinga

  • Pantanir og frágangur á vörum

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala

  • Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi

  • Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Tekur þátt í teymisvinnu

  • Tölvufærni

  • Góð aðlögunarhæfni

  • Þjónustulund og jákvæðni

  • Lágmarksaldur umsækjanda er 18 ár

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, ritari, skrifstofustörf, eldhússtörf, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 30%

Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurdís Ólafsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: sigurdio@landspitali.is

Sími: 5437310

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

30%

Starf skráð

15.05.2026

Umsóknarfrestur

26.05.2026