
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Viltu taka þátt í að byggja upp nýja þjónustu frá grunni og hafa áhrif á þróun hennar?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á nýrri bráðamatsdeild. Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í mótun deildar þar sem gæði, fagmennska og teymisvinna er í forgrunni.
Bráðamatsdeildin er ný og spennandi viðbót við bráðaþjónustu Landspítala, skipulögð að breskri fyrirmynd. Um er að ræða 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga.
Áhersla er lögð á
skjótt og markvisst mat sjúklinga
samþætta teymisvinnu
skýra og árangursríka verkferla.
Hér gefst tækifæri til að
hafa áhrif á þróun verklags og þjónustu frá fyrsta degi
vinna í kraftmiklu og lærdómsríku umhverfi
efla þína faglegu færni
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.
Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga
Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli og meðferð
Þróun ferla og verkefna á nýrri deild
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Góð íslenskukunnátta er æskileg
Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun,
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5 - 5/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
15.05.2026
Umsóknarfrestur
26.05.2026