Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri á leyfasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026
Teymisstjóri á leyfasviði
Útlendingastofnun leitar að teymisstjóra til að leiða málsmeðferðarteymi á leyfasviði stofnunarinnar. Leyfasvið hefur það hlutverk að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi á Íslandi og íslenskan ríkisborgararétt. Helstu verkefni teymisstjóra á leyfasviði eru dagleg stjórnun teymisins, að tryggja að stjórnsýsluákvarðanir séu faglegar, vandaðar og í samræmi við lög, stuðla að skilvirkri málsmeðferð, hvetja starfsfólk til umbóta og efla góðan liðsanda.
Teymisstjóri á leyfasviði þarf að búa yfir leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Teymisstjóri heyrir undir sviðsstjóra leyfasviðs Útlendingastofnunar.
Útlendingastofnun er vinnustaður þar sem lögð er áhersla á stafræna þróun og umbætur. Hjá stofnuninni starfar samhentur hópur rúmlega 100 starfsmanna á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun og skipulag teymisins
Ráðgefandi hlutverk og stuðningur fyrir starfsfólk teymisins
Að umsóknir og erindi séu afgreidd á faglegan og skilvirkan hátt í samræmi við lög og reglugerðir
Að teymið starfi í samræmi við stefnur og markmið stofnunar
Að verkferlar séu til staðar, þeim fylgt og uppfærðir
Fræðsla starfsfólks og samstarfsaðila
Að unnið sé að stöðugum umbótum innan teymissins
Hæfniskröfur
BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
Farsæl reynsla af stjórnun með mannaforráðum er kostur
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking og reynsla af útlendingamálum er kostur
Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á stafrænum lausnum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
Mjög góð almenn tölvukunnátta
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Kunnátta í einu Norðurlandatungumáli
Geta til að leiða umbótastarf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. og kynningarbréf sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað verður. Í einstaka tilfellum leggur stofnunin einnig verkefni fyrir umsækjendur í ráðningarferlinu.
Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. júlí nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði.
Tekið er við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dómhildur Árnadóttir
Tölvupóstur: domhildur@utl.is
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri á leyfasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.05.2026
Umsóknarfrestur
01.06.2026