Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Félagslífsfulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

25%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

04.06.2026

Félagslífsfulltrúi

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði auglýsir stöðu félagslífsfulltrúa, frá og með 1. ágúst 2026.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi til að vinna með nemendum og styðja við fjölbreytt félagslíf innan skólans.

Um 25% starf er að ræða.

Flensborgarskólinn er heilsueflandi framhaldsskóli í Hafnarfirði og leggur áherslu á framsækni og metnað í námi, farsæld nemenda og starfsþróun starfsfólks. Framtíðarsýn skólans má sjá í stefnu hans og er þar m.a. lögð áhersla á framsækni og metnað í skólastarfi auk vellíðunar og farsældar nemenda og starfsfólks. Á heimasíðunni www.flensborg.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennir leiðtogaþjálfun og undirbýr nemendur undir hlutverk sín á vegum nemendafélagsins

  • Tekur þátt í að efla þátttöku nemenda og skólaanda í félagsífi

  • Hafa umsjón og eftirlit með samkomum nemenda skólans

  • Er tengiliður á milli nemendafélags og stjórnenda skólans

  • Önnur tilfallandi störf í samráði við skólameistara

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa náið með ungu fólki í að skipuleggja, efla og styðja félagslíf nemenda við skólann. Starfið getur hentað vel samhliða háskólanámi.

Verkefnastjóri skal hafa:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegt nám

  • Reynslu af starfi með ungu fólki og/eða skólastarfi

  • Faglegan metnað, frumkvæði og jákvætt hugarfar

  • Afburða góða hæfni til samvinnu og samskipta

  • Góða ritfærni í íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is)

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

  • Náms- og starfsferilsskrá

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu Flensborgarskólans og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Starfshlutfall er 25%

Umsóknarfrestur er til og með 04.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erla Sigríður Ragnarsdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: erla@flensborg.is

Sími: 565 0400

Júlía Jörgensen

Aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: julia@flensborg.is

Sími: 565 0400

Þjónustuaðili

Flens­borg­ar­skóli

Upplýsingar um starf

Starf

Félagslífsfulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

25%

Starf skráð

22.05.2026

Umsóknarfrestur

04.06.2026